Myndvinnsla og myndavélar - Vefnámskeið

Myndvinnslunámskeiðið er nýtt og endurbætt. Nú er aukin áhersla á vinnulag við stafrænar myndavélar, skipulag-röðun og leit af myndum ásamt grunnlagfæringum með frábæru (fríu) forriti auk þess sem við kynnum til sögunnar afar kröftugt Photoshop samhæft myndvinnsluforrit sem er hægt að fá frítt á netinu. Þar með eru nemendur ekki bundnir lengur við hinar mörgu og mismunandi útgáfur af Photoshop.

Að auki er farið í gerð myndasýninga (slideshow) sem er t.d. hægt að brenna á geisladisk og gefa sem tækifærisgjöf. Auk alls þessa er tæpt stuttlega á vinnslu á myndböndum með Microsoft Movie Maker.


Námsþættir:
  • Myndvinnsla fyrir ólíka miðla. Prentun, vinnsla myndbanda, brögð og brellur.
  • Stafræn myndataka. Gerð myndasýninga. 
  • Síur og lög. Myndvinnsluforrit. Skráagerð og litafræði. 


Hæfniviðmið

Aukin færni í myndvinnslu.

Aukin þekking á því hvernig vinna má með myndir.

Færni til að nýta myndvinnslu í lífi og starfi.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma, 533 4004, sem er opinn 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    22. nóvember. Stendur yfir í þjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar þeim sem vilja auka færni sína í notkun myndvinnsluforrita.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Bergþóra Guðjónsdóttir
    bergthora(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
07.12.2016Myndvinnsla fyrir ólíka miðla. Prentun, vinnsla myndbanda, brögð og brellur.Bjartmar Þór Hulduson
29.11.2016Síur og lög. Myndvinnsluforrit. Skráagerð og litafræði.Bjartmar Þór Hulduson
06.12.2016Stafræn myndataka. Gerð myndasýninga.Bjartmar Þór Hulduson