20 góð ráð í þjónustusímsvörun - stafrænt nám
Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðra. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma. Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum og verkefnum.
Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is. Þátttakendur fá einnig 4 vikum eftir námskeiðslok sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.
Námskeiðið er opið í 4 vikur.
Hæfniviðmið
Stýra og stytta samtöl.
Þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.
Læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.
Efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.Helstu upplýsingar
- Tími12. febrúar 2020, námskeiðið er opið í fjórar vikur.
- Lengd10 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir
- TegundFjarnám
- Verð12.900 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er opið öllum.
- Gott að vitaStafrænt nám er hægt að stunda hvar og hvenær sem er.
- MatSkila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
- Ummæli
Takk fyrir fróðlegt og skemmtilegt námskeið.
– Auður Ýr
Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.
– Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði
Takk fyrir, vel gert og hagnýtt námskeið sem ég á eftir að nýta mér í starfi.
– Aldís Eyjólfsdóttir, starfsmannastjóri NLFÍ
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
12.02.2020 | 20 góð ráð í þjónustusímsvörun | Margrét Reynisdóttir |