Excel töflureiknir, framhald - Vefnámskeið

Námskeiðið Excel framhaldsnámskeið er hugsað fyrir þá sem hafa einhverja þekkingu og reynslu af forritinu. Þetta er vefnámskeið þar sem nemendur fá sent námshefti og skoða einnig kennslumyndbönd á netinu. 

 
Námsþættir:

  • Mikilvægustu gagnavinnsluföllin.
  • Gögn sótt sjálfvirkt á Netið inn í Excel til vinnslu.
  • Snúningstöflur (Pivot).
  • Uppflettiföll, leitar- og rökfræðiföll.
  • Erlendir gagnagrunnar.
  • Gögn sótt í gagnavinnslukerfi.
  • Röðun og síun gagna.
  • Tengingar milli skjala og innan vinnubókar.
  • Verndun og læsing gagna.
  • Fjölvavinnsla (Macros) og gerð þeirra.
  • Fjármálaföll. 

Kennari hefur samband við alla skráða þátttakendur þann dag sem námskeið hefst. Það er þó opið fyrir skráningar alla fyrstu vikuna.

Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

"VALFRJÁLST UPPHAF": NÝJUNG! Þarft ekki að bíða til 18. des., getur hafið námið um leið og skráning er samþykkt

Hæfniviðmið

Aukin færni í notkun Excel.

Að geta haldið utan um skipulag og úrvinnslu stórra gagnaskráa.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. desember. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar öllum sem vilja bæta kunnáttu sína og færni í Excel.
  • Gott að vita
    Námskeiðið hefst formlega 18.desember en þáttakendum stendur til boða "valfrjálst upphaf" - þ.e.a.s. hægt að hafa samband við kennarann og hefja leikinn um leið og skráning er samþykkt. Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
18.12.2019Notendaviðmót Excel, Gögn og listar, Data Form, Samsett röðun með Data Sort, Data Filter, Millisamtölur og Data GroupsBjartmar Þór Hulduson
09.12.2019NPER, PMT, FV fjármálaföllinn, H & V Lookup uppflettiföll, Stuttlega um Fjölva og Pivots, Gögn sótt í ytri gagnalindirBjartmar Þór Hulduson
16.12.2019Læstar/ólæstar/blandaðar tilvísanir, Fallasmiðurinn, If rökfallið, Fjármálaföll - NPVBjartmar Þór Hulduson