Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu - Er gaman í vinnunni? Áskoranir og (starfs)ánægja - Hópur II
Vinnan er stór hluti af lífi okkar og vellíðan á vinnustað skiptir máli fyrir lífsgæði okkar almennt. Á námskeiðinu er fjallað um viðhorf til verkefna, vinnustaðarins og vinnufélaga. Fjallað verður um ábyrgð einstaklings á eigin starfsþróun og líðan í lífi og starfi. Rætt er um samskiptahætti, starfsánægju og skipulag verkefna. ,,Hvaða strauma sendir þú frá þér?“ er spurning sem þátttakendur vinna með. Sérstaklega er unnið með hrós og endurgjöf og fleiri leiðir til að hlúa að góðu andrúmslofti og vinnustaðamenningu.
Hæfniviðmið
Aukið sjálfstraust og bættur árangur í starfi.
Að þekkja eigin styrk og takast á við eigin takmarkanir.
Aukin vitund um ábyrgð á eigin líðan, hvernig viðhorf hafa áhrif á umhverfið og ánægju.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudaginn 26. september 2019, frá kl. 8:30-10:30.
- Lengd2 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir
- StaðsetningHlíðarsmári 1, 201 Kópavogi.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
- Gott að vitaAðeins fyrir starfsfólk Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 26.09.2019 | Sjálfstyrking og starfsánægja | 08:30 | 10:30 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |