Reykjanesbær - Þjónandi leiðsögn - Hópur 3

Þjónandi leiðsögn (Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan. Vinátta, umhyggja, tengsl og hvatning eru grundvallaratriði í öllum samskiptum. Skipulag og lausnir byggðar á mannlegum gildum og kærleika eru notaðar til að aðstoða fólk til þess að fá dýpri skilning á samskiptum og daglegum viðfangsefnum. Lögð er áhersla á að nálgast einstaklinginn með alúð, vináttu og umhyggju og hvetja hann til að setja sér markmið og veita aðstoð við að ná þeim.

Í fyrirlestrinum verður farið í grunnstoðir þessarar hugmyndafræði, hvernig hún nýtist í störfum okkar og hvernig hún samtvinnast við þá hugmyndafræði sem bundinn er í lög- og mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudagur 29. mars kl. 12:00 - 16:00
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Arne Friðrik Karlsson, sérfræðingur
  • Staðsetning
    Hljómahöllin, Hjallavegi 2, 260 Reykjanesbæ
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn Reykjanesbæjar
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
29.03.2022Þjónandi leiðsögn12:0016:00Arne Friðrik Karlsson