Isavia | Tímamót og tækifæri

Hér er fjallað um ólíka þætti þeirra kaflaskila sem starfslok eru í lífi fólks. Eftir áratugalanga veru á vinnumarkaði þarf fólk að takast á við breytt hlutverk á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Rætt er um bæði andlegar og félagslegar hliðar þessara breytinga og hve mikilvægt er að vera undir þær búinn. 

Farið er yfir réttindi og fjármál eldri borgara, bæði út frá lífeyrisréttindum (LSR) og almannatryggingakerfinu. Rætt er um um heilsueflingu á efri árum og mikilvægi heilsuræktar, hreyfingar og hollrar næringar til þess að auka líkur á farsælli öldrun. 

Dagskrá:

08:30 – 09:00 Kynningarfyrirlestur
09:00 – 09:45 Hreyfing á efri árum, til mikils að vinna I Guðbjörg Hulda Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
09:45 – 10:00 Stöndum upp og liðkum málbeinið
10:00 – 11:00 Svefn og svefnvenjur I Carmen Maja Valencia, sálfræðingur
11:00 – 12:00 Andleg heilsa og streitukerfi mannsins. Eftirlitskerfi hugsana. I Hjördís Unnur Másdóttir, sálfræðingur

12:00 -12:45 Hádegisverður

12:45 – 14:45 Lífeyris- og fjármál I Þóra Jónsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í lífeyrismálum
15:00 – 15:45 Vangaveltur um lífið og tilveruna í gegnum tónlist I Magnús Þór, tónlistarmaður

Þakklætis- og kveðjustund hópsins

Hæfniviðmið

Að þátttakendur séu betur búnir undir starfslok, bæði félagslega og andlega.

Að þátttakendur þekki helstu réttindi í lífeyrissjóðum og almannatryggingakerfinu.

Að þátttakendur þekki mikilvægi heilsueflingar á efri árum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. apríl 2024 kl. 8.30-16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    7,5 klst.
  • Umsjón
    Ýmsir kennarar
  • Staðsetning
    Hótel Natura, Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem eru að láta af störfum sökum aldurs.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað starfsfólki Isavia sem boðað hefur verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.04.2024Tímamót og tækifæri08:3016:00Ýmsir kennarar koma að kennslunni.