LRH | Virkjum stressið og nýtum kraftinn

Nýjustu streiturannsóknir sýna að við höfum stórlega vanmetið þau miklu jákvæðu áhrif sem streita getur haft á okkur.

Í metsölubókinni The Upside of Stress eftir heilsusálfræðinginn PhD Kelly McGonigal við Stanford háskóla eru teknar saman fjölmargar rannsóknir sem varpa ljósi á eðli streitu og hvernig hægt er að virkja hana til góðra verka. 

Það hvernig við hugsum skiptir mestu því kraftur hugans er mikill. Sem dæmi þá eru þeir sem trúa því að streita sé slæm líklegir til að upplifa neikvæðar afleiðingar af þessu kröftuga viðbragði. Þeir sem aftur á móti hafa tilgang í lífinu, hugsa um aðra og trúa því að streita sé góð eru í næstum engri hættu á streitutengdum vandamálum, jafnvel þó að aðstæður þeirra séu mjög streituvekjandi.  Ekki nóg með það heldur styrkist hjarta- og æðakerfið, heilinn þroskast hraðar, góðmennska eykst og samvinna og frammistaða batnar.
Hugurinn hefur áhrif á líkamann og með einföldum hugarfarsaðferðum er hægt að virkja streituviðbragðið til stórra verka enda viðbragðið með eindæmum aflmikið.

Í þessum magnaða fyrirlestri verður sagt frá næstum því ótrúlegum rannsóknum sem gerðar hafa verið og þar koma m.a. fram systkinin kortisól, oxýtosín, serótonín, adrenalín og útlenskur frændi þeirra DHEA. Nágranninn Ghrelin, hungurhormónið, kemur einnig við sögu.

Hæfniviðmið

Að þekkja til jákvæðra áhrifa streitu

Að geta beitt einföldum hugarfarsaðferðum til góðra verka

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    9. september 2025 kl. 11.00 - 12.00. Skráningu lýkur 5. september kl. 12.00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
  • Staðsetning
    Í sal BSRB hússins, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Helga Rún Runólfsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
09.09.2025Virkjum stressið og nýtum kraftinn11:0012:00Eyþór Eðvarðsson