Framúrskarandi teymi

Vilt þú byggja upp öflugt og árangursríkt teymi?

Rannsóknir sýna að áhrif umhverfis eru mikil og styðja við að teymi séu framúrskarandi. Stjórnendur sem byggja upp starfsumhverfi þar sem markmiðin eru skýr og sálrænt öryggi ríkir, sjá meiri árangur.

Á þessu námskeiði fá þátttakendur innsýn inn í mikilvægi starfsumhverfisins og áhrif þess á liðsheild og samvinnu. Fjallað verður um þá þætti sem eru nauðsynlegir til þess að byggja upp umhverfi sálræns öryggis og jákvæðrar menningar.

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur munu taka virkan þátt í námskeiðinu. Kennsluaðferðir eru meðal annars æfingar, dæmi og umræður.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Mikilvægi liðsheildar og samvinnu
  • Leiðtogahæfni
  • Sálrænt öryggi og samskipti
  • Vinnustaðamenningu

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir mikilvægi liðsheildar

Að geta nýtt þekkingu og færni til þess að byggja upp öflugt teymisumhverfi

Að geta notað góða leiðtogafærni og hæfni til að efla teymið þitt

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og æfingar.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    7. október 2025 kl. 13.00 - 16.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Íris Sigtryggsdóttir, viðskiptafræðingur og stjórnendamarkþjálfi
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir alla stjórnendur með mannaforráð eða þau sem stýra teymum í styttri eða lengri verkefnum
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting, þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
07.10.2025Framúrskarandi teymi13:0016:00Íris Sigtryggsdóttir