Kulnun í starfi: orsök, áhættuþættir og einkenni
Á námskeiðinu er fjallað um eðli kulnunar í starfi, áhættuþætti hennar og mögulegar fyrirbyggjandi aðgerðir.
Þátttakendur munu læra að greina áhættuþættina á eigin vinnustað út frá kenningum vinnusálfræðinga og læra aðferðir til þess að greina og bregðast við streitu og álagi á vinnustaðnum.
Rannsóknarniðurstöður rekja kulnun til þriggja orsakaþátta;
a) eiginleika einstaklings
b) tækniframfara
c) vinnustaðarins (t.d. stjórnunarhátta, eðlis starfs og starfsálags). Engu að síður einblína langflest úrræði gegn kulnun aðeins á fyrstu tvo þættina og almenn umræða gerir einstaklinginn, tækninýjungar eða lífsgæðakapphlaup að helstu sökudólgum. Vinnustaðurinn sem áhættuþáttur hefur orðið útundan í þessari umræðu. Hugsanlega er það vegna þess að stjórnendur á vinnustöðum skortir góðar upplýsingar um hvað þeir geta gert til þess að bregðast við þessu samfélagsmeini.
Hvað er kulnun/starfsþrot?
Til þess að geta farið í fyrirbyggjandi aðgerðir verða stjórnendur að skilja til hlítar hvað kulnun er og hvað er að gerast í líkama þess sem er kominn í starfsþrot eða er á barmi þess. Þátttakendur fá fræðslu um streitukerfi líkamans og hvernig langvarandi streita getur leitt til kulnunar og annarra veikinda.
Heilsuspillandi áhættuþættir á vinnustað
Kynntar verða helstu kenningar um hvernig skipulag og stjórnun vinnustaða getur orsakað streitu og kulnun í starfi. Fyrst og fremst verður unnið út frá kenningum Maslach, en hún er brautryðjandi í rannsóknum á kulnun. Fjallað verður um hvernig stjórnunarhættir, eðli starfs, félagslegur stuðningur, samskipti og starfsálag hafa áhrif á tíðni og alvarleika kulnunar. Út frá þessum kenningum munu þátttakendur á námskeiðinu kortlegga þá þætti á eigin vinnustað sem kynnu að vera áhættuþættir og leita leiða til þess til að bæta starfsumhverfið og draga úr hættu á starfsþroti.
Á námskeiðinu er fjallað um
- Áhættuþætti kulnunar - samspil einstaklings, tækninnar og vinnustaðarins.
- Lífeðlisfræði kulnunar - hvað er að gerast í líkamanum?
- Lífsgildi og hugmyndafræði nútímans sem valda streitu.
- Stjórnunarhætti og umhverfisþætti sem valda streitu.
Hæfniviðmið
Að auka skilning á eðli kulnunar/starfsþrots.
Að læra gagnreyndar leiðir til þess að sporna gegn streitu á vinnustað.
Að þekkja einkenni kulnunar og fá þjálfun í að bregðast við ef grunur er um kulnun hjá starfsmanni.
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram í fyrirlestrum og hópavinnu.Helstu upplýsingar
- Tími2 skipti: föstudagana 29. apríl og 6. maí kl. 8:30 - 12:30
- Lengd8 klst.
- UmsjónDr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, prófessor í félagssálfræði við HÍ og Elfa Þöll Grétarsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun við LSH
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað stjórnendum sem vilja fræðast um orsakir og áhættuþætti kulnunar, um leiðir til þess að draga úr hættu á kulnun, hvernig þekkja má fyrstu einkenni kulnunar og vita hvernig á að bregðast við þeim.
- Gott að vitaAðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is5500060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 29.04.2022 | Kulnun í starfi: orsök, áhættuþættir og einkenni | 08:30 | 12:30 | Dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir |
| 06.05.2022 | 08:30 | 12:30 |