Trúnaðarmenn Sameykis - Nýliðafræðsla kl. 13:00-15:00
Á námskeiðinu kynnast nemendur uppbyggingu vinnumarkaðarins. Farið verður yfir hlutverk Sameykis og hvaða þjónustu skrifstofa Sameykis veitir og hvernig best er að finna upplýsingar um kjara- og réttindamál. Þá verður fjallað um ákvæði í lögum og reglum um trúnaðarmanninn sem er sá grunnur sem starf trúnaðarmannsins byggir á. Einnig verður farið yfir réttindi og vernd trúnaðarmanna. Fjallað er um ábyrgð og skyldur kjörinna fulltrúa og tækifærin sem felast í hlutverkinu. Einnig er fjallað um jafnréttishugtakið og mikilvægi þess að samþætta jafnréttishugsun inn í ákvarðanatöku.
Helstu efnisþættir
- Vinnumarkaðurinn
- Sameyki stéttarfélag, Mínar síður Sameykis og hvar finna má upplýsingar
- Lög og reglur um trúnaðarmenn
- Skyldur og ábyrgð kjörinna fulltrúa
- Jafnrétti í reynd
Markmið
Að kjörinn fulltrúi:
- Þekki vel félagið sitt og viti hvar er hægt að finna upplýsingar um kjara- og réttindamál
- Viti í hvaða lögum og reglum er fjallað um hlutverk hans og þekki ákvæði um vernd
- Sé meðvitaður um ábyrgð sína og skyldur sem kjörinn fulltrúi
- Kunni að setja upp jafnréttisgleraugun við ákvarðanatöku og stefnumótun.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, fyrirspurnir og samræðurHelstu upplýsingar
- TímiFimmtudagur 9. september kl. 13:00-15:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónKristín Erna Arnardóttir sérfræðingur á Félagssviði Sameykis
- StaðsetningGrettisgata 89, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurTrúnaðarmenn Sameykis
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
09.09.2021 | Nýliðafræðsla trúnaðarmanna Sameykis | 13:00 | 15:00 | Kristín Erna Arnardóttir |