Isavia | Ólíkar stjórnunaraðferðir
Spjallað um stjórnun – Anna Björk framkvæmdarstjóri eða Bjarni P. Tryggvason forstöðumaður mæta í stutt morgunspjall.
Eyþór kennir síðan um ólíka stjórnunarhætti en í bókinni Primal Leadership eftir Richard Boyatzis, Daniel Goleman og Annie McKee er greint frá niðurstöðum á viðamiklum rannsóknum á frammistöðu 3.870 leiðtoga um allan heiminn og hvernig þeir ná að laða fram það besta hjá sínu fólki. Niðurstöður þeirra sýna að árangursríkir leiðtogar treysta ekki á eina aðferð í stjórnun heldur beita mismunandi aðferðum, allt eftir aðstæðum. Líkja má aðferðunum við mismunandi golfkylfur þar sem golfarinn velur hentuga kylfu eftir aðstæðum.
Á námskeiðinu verður farið ofan í saumana á þeim sex aðferðum sem áhrifaríkir stjórnendur nota og hvenær hægt er að nýta þær. Fjórar aðferðir hafa mjög jákvæð áhrif á starfsanda en tvær hafa ekki jákvæð áhrif og í sumum tilfellum neikvæð áhrif en eru engu að síður áhrifaríkir og nauðsynlegir í vissum aðstæðum.
Um er að ræða hagnýtar aðferðir sem gagnast öllum stjórnendum sem vilja auka færni sína í stjórnun starfsmanna.
Hæfniviðmið
að öðlast betri þekkingu á ólíkum stjórnunaraðferðum og hvenær þær virka
að bæta starfsandann
að auka færni í stjórnun
að auka færni í að beita ólíkum stjórnendaaðferðum
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími14. mars 2023, frá kl. 8:30 - 9:00, Anna Björk Bjarnadóttir og frá 9:00-12:00 Eyþór Eðvarðsson.
- Lengd3,5 klst.
- UmsjónEyþór Eðvarðsson og Anna Björk Bjarnadóttir
- StaðsetningKennslustofa, Eystra flughlað.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStjórnendur hjá Isavia.
- Gott að vitaAðeins fyrir þau sem boðuð hafa verið á námskeiðið.
- Mat100% mæting
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
14.03.2023 | Spjallað um stjórnun – Anna Björk framkvæmdarstjóri eða Bjarni P. Tryggvason forstöðumaður mæta í stutt morgunspjall. | 08:30 | 09:00 | Eyþór Eðvarðsson |
14.03.2023 | Ólíkar stjórnunaraðferðir | 09:00 | 12:00 | Eyþór Eðvarðsson |