SSH | Þjónandi leiðsögn

Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan. Vinátta, umhyggja, tengsl og hvatning eru grundvallaratriði í öllum samskiptum. Skipulag og lausnir byggðar á mannlegum gildum og kærleika eru notaðar til að aðstoða fólk til þess að fá dýpri skilning á samskiptum og daglegum viðfangsefnum. Lögð er áhersla á að nálgast einstaklinginn með alúð, vináttu og umhyggju og hvetja hann til að setja sér markmið og veita aðstoð við að ná þeim.

Í fyrirlestrinum verður farið í grunnstoðir þessarar hugmyndafræði, hvernig hún nýtist í störfum okkar og hvernig hún samtvinnast við þá hugmyndafræði sem bundinn er í lög- og mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að.

Hæfniviðmið

Að geta útskýrt og nýtt sér hugmynda- og aðferðafræði sem byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verkefni

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 4. október kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Elva Hjálmarsdóttir
  • Staðsetning
    Húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Andrastöðum á Kjalarnesi).
  • Gott að vita

    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Andrastöðum á Kjalarnesi).

    Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
04.10.2023Þjónandi leiðsögn09:0012:00Elva Hjálmarsdóttir