Þema I | Stjórnsýsla og lagaumhverfi hins opinbera og málsmeðferð
Fjallað verður um ákvæði stjórnsýslulaga, kröfur um háttsemi starfsmanna og leiðbeiningarskyldustjórnvalda. Þá er einnig fjallað um skráningu mála og upplýsinga og aðgang að gögnum samkvæmtstjórnsýslu- og upplýsingalögum.Helstu efnisþættir námskeiðsins eru:• Stjórnsýsla og lagaumhverfi hin opinbera• Málsmeðferð• Leiðbeiningarskylda stjórnvalda• Skráning mála og aðgangur að upplýsingum
Hæfniviðmið
Að kynnast nokkrum af grundvallarreglum íslenskrar stjórnsýslu og þýðingu þeirra fyrir starfið, með áherslu á þær reglur sem birtast í stjórnsýslulögum.
Að þekkja til ákvæða um málsmeðferðir og stjórnvaldsákvarðanir auk leiðbeiningarskyldu stjórnvalda og hvaða kröfur gilda um skráningu mála, upplýsinga og erinda sem berast stjórnvöldum.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími12. október 2022, frá kl. 9:00-12:00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSara Lind Guðbergsdóttir
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð16.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurLaunafulltrúar og þeir sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.
- Gott að vitaMarkmiðið með náminu er að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Mat90% mæting
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
12.10.2022 | Stjórnsýsla og lagaumhverfi hins opinbera og málsmeðferð | Sara Lind Guðbergsdóttir |