Dómstólasýslan - Hugarkort - Mind Mapping - Vefnám - Valfrjálst upphaf. Skráning frá 06.10 til 20.12

Hugarkort eru öflugt verkfæri sem hægt er að nota til að auka færni í starfi og námi.Þau gefa nýja leið til að greina og meta einföld sem flókin viðfangsefni bæði til að þróa nýjar hugmyndir, festa efni betur í minni og auka skilning á viðfangsefninu.

Með hugarkortum er hægt að skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt. Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og í dag er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun. 

Á námskeiðinu er kennd aðferðafræði hugarkorta og nýting þeirra með notkun á (ókeypis) hugbúnaði.

Námsþættir:

  • Gerð hugarkorta, hagnýt verkefni.
  • Xmind -Notendavænn hugbúnaður fyrir hugarkortagerð.

Hæfniviðmið

Að efla færni í notkun hugarkorta.

Að auka þekkingu á möguleikum hugarkorta.

Fyrirkomulag

Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt.
Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti kennari(hjá)nemandi.is, vefspjalli og í þjónustusíma 788 8805 frá kl. 10-20 alla virka daga.
Stuðningstími er veittur að námskeiði loknu.
Nemendur hafa aðgang að námsefninu í 2 ár eftir nám.
Nánari upplýsingar hjá kennara námskeiðsins.

Helstu upplýsingar

  • Lengd
    12 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám Upphaf námskeiðis er skráð 20. des. en skráning opnar 6. okt. og hægt að byrja hvenær sem hentar til og með 20. des.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn dómstólanna
  • Gott að vita

    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki. Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.

    Námskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en Dómstólasýslan greiði fyrir aðra. 

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
20.12.2021HugarkortBjartmar Þór Hulduson