Launaskólinn - Þema II Starfsfólk grunn- og tónlistarskóla - Valnámskeið

Starfsfólk grunn- og tónlistarskóla – sérstakir launaútreikningar -Valnámskeið (4 klukkutímar)

Markmið
Markmið námskeiðs er að þátttakendur kunni skil á grunnatriðum varðandi launaútreikninga starfsmanna stofnana þar sem starfsemin liggur niðri hluta úr ári, t.d. í skólum og í æskulýðsstarfi og að þátttakendur viti hvaða gögn þurfa að liggja fyrir við ráðningu starfsmanna í grunn- og tónlistarskólum.

Námslýsing
Farið er yfir grunnforsendur varðandi launaútreikninga kennara og annarra skólastarfs­manna sem vinna af sér daga meðan á starfstíma skóla stendur. Auk þess er komið inn á þau gögn sem þarf að afla þegar gengið er frá ráðningu svo sem leyfisbréfs og upplýsinga úr sakaskrá.

Helstu efnisatriði námskeiðsins eru:

Tilflutningur á vinnuskyldu
Vinnuskýrsla
Mat á menntun (nýtt ákvæði)
Orlof, fæðingarorlof, uppgjör við starfslok
Upplýsingaöflun úr sakaskrá
Leyfisbréf, undanþágur

Umsjón
Bjarni Ómar Haraldsson Samband íslenskra sveitarfélaga.

Verð
Námskeiðið er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar  að kostnaðarlausu, aðrir greiða kr. 12.000.

Hæfniviðmið

Að þátttakendur kunni skil á grunnatriðum varðandi launaútreikninga starfsmanna stofnana þar sem starfsemin liggur niðri hluta úr ári, t.d. í skólum og í æskulýðsstarfi.

Að þátttakendur viti hvaða gögn þurfa að liggja fyrir við ráðningu starfsmanna í grunn- og tónlistarskólum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    20. febrúar 2019 frá kl. 8:30-12:30.
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Bjarni Ómar Haraldsson
  • Staðsetning
    Skipholt 50b, 105 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    12.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið er ætlað þeim sem starfa í launavinnslu og koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ.
  • Gott að vita
    Kennt er samkvæmt nýrri námskrá.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    90% mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
20.02.2019Starfsfólk grunn - og tónlistarskóla08:3012:30Bjarni Ómar Haraldsson