Samgöngustofa - Hamingja, mórall, vinnugleði og helvíti - Af fræðilegum og skemmtilegum vinklum um samskipti á vinnustöðum

Samstarf á vinnustöðum ætti auðvitað að geta gengið frábærlega því allir vilja að samskiptin séu góð, að verk séu vel og rétt unnin, vera stoltir af eigin verkum og svo framvegis.

En hvernig er almennilegt samstarf á vinnustöðum? Það er hægt að svara spurningunni á marga skemmtilega vegu og í fyrirlestrinum verður farið yfir þá. 

Patrick Lencione sem gaf út metsölubókina The Five Dysfunctions of a Team, fjallar um þau atriði sem þurfa að vera til staðar til að samstarf milli samstarfsmanna nái góðum hæðum. Starfsánægja og gleði starfsmanna fer einnig eftir ákveðnum skrefum samkvæmt því sem kom fram í rannsóknum þeirra Marcus Buckingham og Curt Coffman á 80.000 manns í Bandaríkjunum. Hamingjufræðin er á mikilli uppleið og þar er m.a. spurt hver ber ábyrgð á hamingjunni; Er það ég, yfirmaðurinn, skuldirnar, kreppan eða kokkurinn? Kannski er einhverjum öðrum ætlað að smíða okkar gæfu. Sagan góða frá englinum um himnaríki og helvíti á einnig við þegar rætt er um gott samstarf. 
Þetta og margt annað verður rætt á hressandi og fræðandi hátt í þessum fyrirlestri.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 4. nóvember kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Eyþór Eðvarðsson hjá Þekkingarmiðlun
  • Staðsetning
    Samgöngustofa, Ármúla 2, 108 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins ætlað starfsfólki Samgöngustofu sem starfar innan deildarinnar NorType.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
04.11.2021Hamingja, mórall, vinnugleði og helvíti - Af fræðilegum og skemmtilegum vinklum um samskipti á vinnustöðum09:0012:00Eyþór Eðvarðsson