Erfið starfsmannamál

Erfið starfsmannamál geta tekið á hlutverk stjórnanda og er mikilvægt að þeir séu vel í stakk búnir til að mæta slíkum málum.

Á þessu námskeiði verður fjallað um skilgreiningar á erfiðum starfsmannamálum, hvernig best er að taka á þeim og hvernig skal fyrirbyggja að slík mál komi upp.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað fellur undir erfið starfsmannamál
  • Hvað gerir þessi mál erfið
  • Úrræði og leiðir
  • Hvernig megi þjálfa og nýta hæfni til að fyrirbyggja og leysa úr erfiðum starfsmannamálum

Hæfniviðmið

Að auka innsýn í leiðir fyrir stjórnendur til að taka á erfiðum starfsmannamálum

Að öðlast betri þekkingu á því hvernig má fyrirbyggja erfið starfsmannamál

Að auka hæfni í starfsmannastjórnun

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður. Þátttakendum verður gefið svigrúm til að ræða saman um þetta viðfangsefni og þeir beðnir um að taka virkan þátt og vera tilbúnir til að deila reynslu sinni sem stjórnendur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    29. september 2025, kl. 09.00 - 13.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Hildur Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Þjóðminjasafns Íslands
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Stjórnendur sem hafa reynslu af mannauðsmálum
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
29.09.2025Erfið starfsmannamál09:0013:00Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir