Almennt tölvunám
Vilt þú læra að nota tölvuna og athafna þig á netinu af öryggi?
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja styrkja grunnfærni sína í tölvunotkun á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Lögð er áhersla á hagnýta færni sem nýtist strax í daglegum verkefnum, hvort sem er heima eða í starfi. Námið fer fram í skýru og styðjandi umhverfi þar sem þátttakendur fá tíma til að læra á sínum hraða og byggja upp öryggi í notkun tækninnar.
Þú kynnist helsta hugbúnaði eins og Windows stýrikerfinu, Word og Excel og jafnframt eykur færni þína í öruggri notkun upplýsingatækni.
Efnistök:
- Windows stýrikerfið
- Skipulagning á skrám og möppum
- Word til þess að leysa fjölbreytt verkefni, helstu skipanir í forritinu og verkfæri
- Innsetning á myndum og töflum í skjöl
- Einfaldar formúlur, myndrit og gagnavinnsla í Excel
- Grunnatriði upplýsingatækni og gagnaverndar
- Hugbúnaður, vélbúnaður og vinnustellingar
Hæfniviðmið
Að öðlast traustan grunn í tölvunotkun sem nýtist í daglegu lífi og starfi
Að öðlast sjálfstraust til að nýta tæknina á þínum forsendum
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd60 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð105.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið hentar byrjendum og þeim sem vilja rifja upp eða bæta við sig almennri tölvuþekkingu
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Almennt tölvunám | 10:00 | 10:00 | Bjartmar Þór Hulduson |