Ert þú tilbúin/n? Undirbúningur fyrir starfsmannasamtal

Á þessu námskeiði verður farið yfir nokkrar grunnspurningar sem eru hugsaðar sem verkfæri sem hjálpa þátttakendum að öðlast þekkingu á tilgangi og uppbyggingu starfsmannasamtala og öðlast aukinn skilning á samspili eigin viðhorfs til starfsmannasamtala og virkrar þátttöku í lifandi ferli.

Hæfniviðmið

Að geta undirbúið starfsmannasamtalið með aðgengilegum og hagnýtum hætti.

Fyrirkomulag

Kennslumyndbönd og verkefni sem þátttakendur hafa aðgang að á „mínar síður“ á heimasíðu Starfsmenntar. Undir „námskeiðin mín“ er smellt á nafn námskeiðis og smellt á „kennslugögn“.

Helstu upplýsingar

  • Lengd
    1 klst.
  • Staðsetning
    Allt landið
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    5.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir almennt starfsfólk sem vill með hagnýtum hætti undirbúa sig fyrir starfsmannasamtal.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er opið öllum en ókeypis fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Helga Rún Runólfsdóttir
    smennt(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
31.12.2021Ert þú tilbúin/n? Hvernig er best að undirbúa sig fyrir starfsmannasamtalið?Fræðslusetrið Starfsmennt