Inngangur að Lean - grunnatriði straumlínustjórnunar

- Fjarnám - 

Skráningu lýkur 19. sept. kl.10:00. 

Á námskeiðinu er farið yfir grunnatriði Lean sem gengur í stuttu máli út á að hámarka virði og lágmarka sóun.

Farið er yfir átta tegundir sóunar og kynnt nokkur lykiltól Lean.

Einnig er farið yfir það hvernig hægt er að virkja betur umbótahugsun til að vinna að stöðugum umbótum.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hugtökin virði og sóun
  • 8 Tegundir sóunar
  • 5S aðferðafræðina
  • Lean morgunfundi / umbótafundi

Ávinningur þinn:

  • Grunnþekking á Lean aðferðafræðinni
  •  Þekking til að byrja strax að eyða sóun og auka virði
  • Aðferðir til að einfalda dagleg störf 

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudagur 4. október kl. 09:00 - 11:00
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Ásdís Kristinsdóttir vélaverkfræðingur og Margrét Edda Ragnarsdóttir rafmagnsverkfræðingur, eigendur og ráðgjafar hjá Gemba
  • Staðsetning
    Vefnám á rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir alla sem vilja einfalda bæði störf sín og annarra. Það er fyrir alla sem vilja læra á verkfæri og þekkja aðferðafræði sem auðveldar upphafið að vegferð stöðugra umbóta.
  • Gott að vita
    Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
04.10.2022Inngangur að Lean - grunnatriði straumlínustjórnunarÁsdís Kristinsdóttir og Margrét Edda Ragnarsdóttir