SharePoint
SharePoint er öflugt samvinnu-verkfæri frá Microsoft sem nota má til að halda utan um og vinna með efni og upplýsingar eins og skjöl, gagnalista, vefsíður og verkefni og jafnvel myndir eða myndbönd.
Námskeiðinu er ætlað að gera þátttakendur að öruggum notendum í SharePoint umhverfinu.
Þú kynnist ítarlega helstu virkni kerfisins sem almennir notendur þurfa að þekkja.
Efnistök eru brotin niður í smærri einingar með textapistlum, kennslumyndböndum og léttum æfingum.
Nemendur hafa góðan stuðning frá kennara og efnistökum verður bætt við út frá fyrirspurnum nemenda.
Efnistök:
- Notendaviðmót
- SharePoint svæði, vefpartar og stillingar (News, links, events)
- Samhæfing skjala
- Að búa til skjalasöfn og lista
- Tegundir lista
- Deiling á gögnum
- Skjalasýn
- Útgáfusaga
- Stillingar skjalasafna
- Office og SharePoint
- Að búa til síður (e.Pages), skjalasöfn og lista
- Leit í Sharepoint
- OneDrive, Office & SharePoint
Hæfniviðmið
Að kynnast og læra á virkni SharePoint til almennra nota
Fyrirkomulag
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.
Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum á mínar síður undir Kennslugögn.
Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.
Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.
Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805, kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 27. október 2025 en upphafið er valfrjálst
- Lengd12 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð43.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja kynnast samvinnu-verkfærinu SharePoint
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
27.10.2025 | SharePoint | 23:59 | 11:59 | Bjartmar Þór Hulduson |