Akra | Gerð rekstraráætlana - launahluti, vaktavinnufólk

Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem sjá um launahluta rekstraráætlananna hjá vaktavinnustofnunum. 

Í AKRA er hægt að áætla laun einstaklinga og hópa með talsverðri nákvæmni. Hér er sýnt hvernig best er að vinna launaáætlun í AKRA, allt frá því að launaforsendur eru sóttar í ORRA og þar til launaáætlun einstaklinga og/eða hópa skilar niðurstöðum í ársáætlun.

Námskeiðið fer fram á Teams og verður launaáætlun dæmigerðrar stofnunar unnin í AKRA.

Upptaka verður gerð aðgengileg á mínar síður eftir að námskeiðinu lýkur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Föstudagur 7. október kl. 13:00 - 14:00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingvi Þór Elliðason
  • Staðsetning
    Vefnám á rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    5.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þetta námskeið er eingöngu ætlað þeim sem sjá um launahluta rekstraráætlana
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Berglind Sunna Bragadóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
07.10.2022Gerð rekstraráætlana - launahluti13:0014:00Ingvi Þór Elliðason