Samgöngustofa - Krefjandi samskipti/aðstæður

Greining á því hvernig: 
• Framkoma/aðstæður reynast þátttakendum erfiðar og hvers vegna – í hverju felst vandinn og hvers vegna getur þjónusta (samskipti) verið krefjandi? 
• Þátttakendum er tamt að bregðast við krefjandi aðstæður s.s. ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir – hvað get ég gert til að draga úr vandanum? 
• Sjálfsþekking og sjálfstraust hefur áhrif á færni í samskiptum s.s. að hjúpa sig, sjálfsstjórn, að setja sig í spor annara, hlustun, raunhæfar væntingar til starfsumhverfis, setningar og ,,tækni“ sem gott er að grípa til 

Lögð er áhersla á: 
• Styrkleika þátttakenda í ólíkum aðstæðum og leiðir til að temja sér ný viðbrögð og yfirfæra styrkleika frá einum aðstæðum yfir í aðrar – vertu sterki aðilinn! 
• Mikilvægi þess að leiða hugann að ástæðum fyrir vandanum t.d. með sjálfsþekkingu og að setja sig í spor viðskiptavinarins – hvað býr að baki? 
• Ýmsar leiðir til að halda jafnvægi og vera lausnarmiðaður í erfiðum aðstæðum – auktu færni þína, sjálfsaga, sjálfsöryggi og vertu sá sem er flinkur í að tala við alla og taka á málum! 
• Hvernig má á kurteislegan hátt standa fast á sínu, leiða samtalið á yfirvegaðri braut, setja mörk en sýna um leið skilning – sjálfsstyrkur og rósemi! 
• Leiðir til að vernda sjálfan sig gegn ágengum einstaklingum og taka ekki ásakanir persónulega – taktu þetta ekki inn á þig! 
• Viðhorf, líta á krefjandi einstaklinga sem áskorun til að þroska eigin samskiptafærni og persónustyrk – reynslubankinn: Þú ert alltaf að læra og styrkjast! 

Hæfniviðmið

Að þátttakendur fái innsýn í hegðun krefjandi viðskiptavina.

Að þátttakendur öðlist meira öryggi í samskiptum sínum við krefjandi viðskiptavini.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 9. júní kl. 13:00 - 16:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Sigríður Hulda Jónsdóttir, MA í náms- og starfsráðgjöf og MBA í stjórnun og viðskiptum frá Háskóla Íslands. Eigandi SHJ ráðgjafar.
  • Staðsetning
    Hótel Örk, Breiðamörk 1c, 810 Hveragerði
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins ætlað starfsfólki Samgöngustofu
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting, þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
09.06.2021Að takast á við erfiða einstaklinga og aðstæður13:0016:00Sigríður Hulda Jónsdóttir