Náðu stjórn á vinnudeginum með Outlook

Láttu ekki Outlook stjórna þér, þú átt að stjórna Outlook. Á þessu námskeiði lærum við að nota Outlook sem tímastjórnunartæki. 

Við skoðum hvernig pósta við eigum ekki að senda frá vinnunetfangi og hvaða hlutverki Outlook gegnir í vinnunni.

Við lærum hagnýtar leiðir í Outlook sem eru hannaðar til að hjálpa okkur að ná stjórn á vinnudeginum.

Við lærum hvaða stillingum við getum breytt í Outlook til þess að taka stjórnina í okkar hendur. 

Við skoðum hvernig Outlook talar við önnur forrit eins og t.d OneNote og Teams og hvernig við nýtum þau með Outlook. 

Hæfniviðmið

Að geta nýtt sér Outlook til tímastjórnunar

Að átta sig á hvernig Outlook getur tengst öðrum Microsoft forritum

Fyrirkomulag

Sýnikennsla og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    23. október 2025, kl. 13.00 - 15.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Hermann Jónsson, sérfræðingur í stafrænum málefnum
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    14.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja læra hvernig Outlook getur hjálpað að ná stjórn á vinnudeginum
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
23.10.2025Náðu stjórn á vinnudeginum með Outlook13:0015:00Hermann Jónsson