Launaskólinn - Þema II Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími - Valnámskeið
Markmiðið er að styrkja launafulltrúa og þá sem koma að starfsmanna og kjaramálum hjá ríki og bæ í starfi, með því að gefa heildarsýn yfir sviðið, kynna helstu ákvæði kjarasamninga og réttinda launþegans ásamt því að veita hagnýtar upplýsingar.
Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími (5 klukkutímar)
Námslýsing
Hér er gerð grein fyrir öðrum tegundum vinnutímaskipulags en dagvinnu, einkum vaktavinnu og bakvöktum með tilliti til launaútreikninga. Fjallað er um vaktskrá, álagsgreiðslur vegna vinnu utan dagvinnutímabils, greiðslur vegna ótryggra neysluhléa, uppgjörsmáta vegna sérstakra frídaga (bæting, greiðslur og vetrarfrí), bakvaktargreiðslur, bakvaktarfrí, útköll o.fl.
Helstu efnisþættir námskeiðsins eru:
Vaktskrá, álagsgreiðslur, greiðslur í stað neysluhléa, uppgjörsmáti v/rauðra daga, helgidagafrí/vetrarfrí
Bakvaktafyrirkomulag, álagsgreiðslur - frí í stað greiðslu, útkall, bakvaktarfrí
Afbrigðilegur vinnutími, álagsgreiðslur, eyðuákvæði
Verð
Námskeiðið er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu, aðrir greiða kr 15.000.
Hæfniviðmið
Að kunna skil á helstu reglum um vaktavinnu, bakvaktir og svonefndan afbrigðilegan vinnutíma.
Að auka færni sína í að sýsla með vinnutímaforsendur starfsmanna sem hafa annað vinnutímaskipulag en hefðbundna dagvinnu.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími19. febrúar 2019 frá kl. 10:00 - 16:00.
- Lengd5 klst.
- UmsjónSigurlaug B. Gröndal
- StaðsetningSkipholti 50b, 105 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- Verð15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið er ætlað þeim sem starfa í launavinnslu og koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og bæ.
- Gott að vitaKennt er samkvæmt nýrri námskrá.
- Mat90% mæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 19.02.2019 | Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími | 10:00 | 12:00 | Sigurlaug Berglind Gröndal |
| 19.02.2019 | Vaktavinna, bakvaktir og afbrigðilegur vinnutími | 13:00 | 16:00 | Sigurlaug Berglind Gröndal |