Ás styrktarfélag | Þjónandi leiðsögn
Hvernig getum við byggt upp traust, öryggi og jákvæð tengsl í daglegu starfi?
Í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða skipta samskipti og tengsl miklu máli.
Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem leggur áherslu á vináttu, virðingu og öryggi í samskiptum milli starfsfólks og notenda.
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig þessi hugmyndafræði getur stutt starfsfólk í daglegu starfi. Fjallað er um hvernig hægt er að byggja upp traust, draga úr kvíða og styðja einstaklinga til að upplifa öryggi og tilheyra. Einnig er skoðað hvernig þessi nálgun tengist mannréttindum og þeim gildum sem liggja til grundvallarþjónustu við fatlað fólk. Áhersla er lögð á raunhæf dæmi úr starfi og hvernig hægt er að nýta þessa hugsun í daglegum samskiptum og stuðningi.
Efnistök:
- Grunnstoðir Gentle Teaching
- Mikilvægi tengsla, vináttu og virðingar í samskiptum
- Hvernig skapa má öryggi og traust í daglegu starfi
- Hvatning og stuðningur við einstaklinga í daglegu lífi
- Gentle Teaching í samhengi við mannréttindi og þjónustu við fatlað fólk
- Dæmi úr starfi og umræður
Hæfniviðmið
Að öðlast betri skilning á hugmyndafræði Gentle Teaching og hvernig hún getur styrkt samskipti, öryggi og vellíðan í daglegu starfi
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verkefniHelstu upplýsingar
- Tími14. apríl 2026 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3 klst.
- UmsjónArne Friðrik Karlsson, sérfræðingur
- StaðsetningÁs styrktarfélag, Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði nýju starfsfólki og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á mannlegri og virðingarfyllri nálgun í starfi
- MatMæting og þátttaka
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 14.04.2026 | Þjónandi leiðsögn | 13:00 | 16:00 | Arne Friðrik Karlsson |