Skálatún | Skyndihjálp upprifjun kl. 9 - 12
Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum.
Upprifjun fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiði fyrir tveimur árum eða fyrr.
Meðal atriða sem farið er yfir eru:
- Aðgerðir á vettvangi
- Skoðun og mat
- Endurlífgun fullorðinna og barna
- Losun aðskotahluta
- Brunasár
- Blæðing
- Beinbrot og liðáverkar
- Höfuðáverkar
- Sálrænn stuðningur
- Bráð veikindi, s.s. brjóstverkur, bráðaofnæmi, flogaveiki, sykursýki, öndunarerfiðleika og heilablóðfall
Hæfniviðmið
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- TímiFöstudagur 10. mars kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónLaufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi
- StaðsetningFræðslusetrið Starfsmennt, Skipholti 50b, 3.hæð, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk Skálatúns
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
10.03.2023 | Skyndihjálp upprifjun | 09:00 | 12:00 | Laufey Gissurardóttir |