Árangursríkari starfsmannasamtöl
Á tímum stöðugra breytinga, áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn.
Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.
Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni.
Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir mikilvægi og tilgangi starfsmannasamtala.
Að geta tileinkað sér betri samtalstækni og hlustun.
Að geta leitt starfsmannasamtöl á faglegan máta
Að geta veitt endurgjöf á viðeigandi máta.
Að geta beitt fjölbreyttum aðferðum við að breyta fyrirkomulagi sem hægt er að byrja strax að vinna með.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræðaHelstu upplýsingar
- Tími21. janúar 2026, kl. 08.30 - 12.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3.5 klst.
- UmsjónInga Þórisdóttir stjórnendamarkþjálfi
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.
- Gott að vitaÞau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
- MatÞátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 21.01.2026 | Árangursríkari starfsmannasamtöl | 08:30 | 12:00 | Inga Þórisdóttir |