Jafnlaunastaðall: IV. Starfaflokkun - FJARNÁMSKEIÐ

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.

Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.

Áreiðanleg og málefnalega rökstudd aðferð við flokkun starfa er lykilatriði í því að vel takist að ná markmiðum um launajafnrétti. Fyrirtæki og stofnanir sem vilja fá jafnlaunavottun á grundvelli staðalsins verða að ákvarða þau viðmið sem lögð skulu til grundvallar flokkun starfa og í framhaldi af því að flokka öll störf samkvæmt þeim.

Á námskeiðinu er fjallað almennt um hugmyndafræðina að baki flokkun starfa, viðmiða og ólíkar aðferðir við starfaflokkun. Einnig er farið yfir verklag og ferli starfaflokkunar skref fyrir skref og hvað felst í þeirri vinnu. Þátttakendum er leiðbeint um flokkun starfa og fá þeir aðgang að verkfærum og líkönum sem þeir geta nýtt á sínum vinnustað.

Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að staðlinum ÍST85:2012, sem má nálgast á stadlar.is

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Föstudaginn 9. nóv. kl 13:00 fer fram prufa á búnaði og ZOOM kerfinu fyrir þá þátttakendur sem það vilja.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.

Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 29. okt.  kl.10:00.

Hæfniviðmið

Að öðlast skilning á starfaflokkun, tilgangi hennar og ólíkum aðferðum.

Að þekkja ferli starfaflokkunar og verklag.

Að geta framkvæmt starfaflokkun, s.s. skilgreint viðmið og flokkað störf á grundvelli þeirra.

Að fá tækifæri til að miðla og læra af öðrum í sömu sporum varðandi flokkun starfa.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð. Næstu námskeið:

1) Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 21. jan. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 25. feb. kl 13:00 - 16:00 skráning hér

2) Jafnlaunastaðall: II. Gæðastjórnun og skjölun 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 28. jan. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 4. mars kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

3) Jafnlaunastaðall: III. Gerð verklagsreglna og annarra skjala í gæðakerfum 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 4. feb. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér 
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 11. mars kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

4) Jafnlaunastaðall: IV. Starfaflokkun 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 11. feb. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 7. jan. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 18. mars kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

5) Jafnlaunastaðall: V. Launagreining 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 18. feb. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 14. jan. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 25. mars kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

Aðrir áhugasamir geta sótt um beint hjá EHÍ hér 


Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudaginn 11. feb. kl. 13:00 - 16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðný Einarsdóttir er sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála-og efnhagsráðuneytinu.
  • Staðsetning
    FJARNÁMSKEIÐ
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
  • Gott að vita
    Starfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM. Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
11.02.2019Á námskeiðinu er fjallað um:13:0016:00Guðný Einarsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
11.02.2019Ferli við flokkun starfa og verklag13:0113:01Guðný Norðdahl Einarsdóttir
11.02.2019Aðferðir starfaflokkunar og val á aðferðafræði.13:0213:02Guðný Norðdahl Einarsdóttir
11.02.2019Ákvörðun og skilgreiningu viðmiða sem lögð eru til grundvallar flokkunar starfa.13:0313:03Guðný Norðdahl Einarsdóttir
11.02.2019Flokkun starfa samkvæmt viðmiðum. − Prófun á starfaflokkun og tenging við launaákvörðun.13:0413:04Guðný Norðdahl Einarsdóttir
11.02.2019Verkfæri og líkön sem nýta má til flokkunar starfa.13:0513:05Guðný Norðdahl Einarsdóttir
11.02.2019Ávinning starfaflokkunar og helstu hindranir.13:0613:06Guðný Norðdahl Einarsdóttir