Reykjavíkurborg - Launaskólinn - Meðferð skjala og skjalavistun

Starf launafulltrúans krefst mikillar þekkingar á inntaki kjarasamninga og yfirgripsmiklu regluverki opinbera vinnumarkaðarins. Launafulltrúar gegna ábyrgðarmiklu starfi þar sem lítið má út af bregða vegna mikilla hagsmuna launþega um að afgreiðsla launa og ávinnsla réttinda sé framkvæmd á réttan hátt. Því er mikilvægt að þeir sem vinna við launavinnslu og á starfsmannadeildum þekki sem best umhverfið og lagarammann og hafi vettvang til að deila vinnulagi og ræða verkferla.

Markmiðið með náminu er að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.

Í lok námskeiðsins er ætlast til að þátttakendur þekki uppbyggingu íslensks vinnumarkaðar og helstu lög og reglur sem eiga við um starfsmenn Reykjavíkurborgar. Einnig að þekkja helstu ákvæði laga og samninga sem varða launaútreikninga og réttindi og skyldur starfsmanna. Þátttakendur fá einnig þjálfun í að taka á vafaatriðum með raunhæfum verkefnum og svara erfiðum fyrirspurnum. Þá verður farið í samskiptareglur, stuðning og siðareglur til að efla starfsfólk og aðstoða það við að standa traustum fótum í krefjandi starfi við úrlausn álita- og ágreiningsmála.

Hæfniviðmið

Að svara brýnni þörf fyrir fræðslu um launamál og launaafgreiðslu og tengja það við kjarasamninga og regluverk í starfsmannamálum og á þann hátt að efla sérfræðiþekkingu starfsfólks.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    21. mars frá kl. 8:30-11:30.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Heiðar Lind Hansson
  • Staðsetning
    Vefnám.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn Reykjavíkurborgar sem koma að launa-, kjara- og mannauðsmálum.
  • Gott að vita
    Námskeiðiði er aðeins ætlað starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem boðaðir hafa verið á námskeiðið.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    90% mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
21.03.2022Launaskólinn - Meðferð skjala og skjalavistun08:3011:30Heiðar Lind Hansson