Hvaða reglur gilda þegar ráða á starfsfólk hjá ríki og sveitarfélögum?
Á námskeiðinu er fjallað um margvíslegar hliðar á ferli opinberra ráðninga og þær kröfur sem gerðar eru til stjórnvalda á hverju stigi. Farið er yfir hvenær auglýsingaskylda virkjast, hvaða kröfur eru gerðar til efnis auglýsinga og að hvaða marki heimilt er að breyta störfum eða flytja fólk á milli þeirra án nýrrar auglýsingar.
Sérstök áhersla er lögð á reglur um hæfnis- og matsviðmið umsækjenda og það svigrúm sem stofnanir hafa við endanlegt val. Þá er fjallað um upplýsingarétt umsækjenda, hvaða gögn ber að afhenda, mögulegar takmarkanir á þeim aðgangi og hvernig standa eigi að vönduðum og fullnægjandi rökstuðningi fyrir ráðningu.
Jafnframt er horft til framtíðar og velt upp álitaefnum varðandi notkun gervigreindar við meðferð ráðningarmála. Umfjöllunin er studd hagnýtum dæmum þar sem meðal annars er vísað í nýlega dóma Landsréttar, Hæstaréttar og álit umboðsmanns Alþingis.
Efnistök
- Undirbúningur og auglýsingaskylda
- Matsferlið og hæfni umsækjenda
- Upplýsingaréttur og gagnsæi
- Framtíðin og tæknin
- Réttarframkvæmd og raunhæf dæmi
Hæfniviðmið
Að veita yfirsýn yfir helstu lagareglur sem gilda um ráðningu starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum samkvæmt lögum og reglum stjórnsýsluréttarins
Að þátttakendur öðlist færni í að beita reglunum í opinberu ráðningarferli, svo sem við auglýsingu starfs, meðferð máls, val á umsækjendum, aðgang að gögnum og rökstuðning ráðningar
Fyrirkomulag
Námskeiðið er í beinu streymi og einnig verður upptaka af því aðgengileg eftir að því lýkur
Helstu upplýsingar
- Tími21. apríl 2026, kl. 13.00 - 16.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3,5 klst.
- UmsjónKjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Zoom
- TegundStreymi
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStjórnendur og starfsfólk hjá stofnunum ríkisins og sveitarfélaga, ásamt ráðgjöfum, sem koma að undirbúningi og ákvörðun um ráðningu í opinbert starf og öðrum ákvörðunum í starfsmannamálum
- Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.
- MatMæting
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 21.04.2026 | Hvaða reglur gilda þegar ráða á starfsfólk hjá ríki og sveitarfélögum? | 13:00 | 16:30 | Kjartan Bjarni Björgvinsson |