Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað

Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.

Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.

Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér.

Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.

Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju.

Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.

Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum.

Fyrirkomulag

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. febrúar 2026 kl. 09.00 - 12.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum og eigendur AUKI - mannauður og stjórnendaráðgjöf.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað.
  • Gott að vita
    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.02.2026Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað09:0012:00Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir