Excel I
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel.
Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess og hvernig þú notar gervigreindina Copilot.
Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu.
Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna.
Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.
Hæfniviðmið
Að öðlast grunnfærni í Excel töflureikni
Fyrirkomulag
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Námskeiðið er sett fram sem 3 vikna kúrs (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 29. september 2025 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja kynnast Excel og nýta það á markvissan hátt
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
29.09.2025 | Excel I | 23:59 | 17:59 | Bjartmar Þór Hulduson |