Endurmenntun atvinnubílstjóra - Skyndihjálp

ATH atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Þátttakendur fá sendan póst með leiðbeiningum um hvernig þau skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.

Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar: að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.

Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Hæfniviðmið

Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp.

Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp

Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum

Að sýna ábyrgð á slysstað og taki frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum

Fyrirkomulag

Hluti námskeiðs er að hluta netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið . Staðnámskeiðið er 3.5 klst. og netnámið er 3.5 klst. Gildir um endurmenntun atvinnubílstjóra. ATH Starfsmennt greiðir ferða- og dvalarstyrki til félagsmanna aðildarfélaga, sem sækja nám á vegum setursins utan heimabyggðar.



Helstu upplýsingar

  • Tími
    20. apríl kl. 17.00-20.30
  • Lengd
    3.5 klst.
  • Umsjón
    Ökuland
  • Staðsetning
    Fjölheimar, Tryggvagötu 13, Selfossi
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar
  • Gott að vita

    Hver einstaklingur má aðeins taka námskeiðið einu sinni á fimm árum

  • Mat
    Að ljúka námskeiði

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
20.04.2026Skyndihjálp17:0017:00Ökuland