Gagnalæsi
Gögn ein og sér eru ekki til mikils. Það er ekki fyrr en við höfum breytt þeim í upplýsingar sem við getum notað þau til að taka betri ákvarðanir. Það er kjarni gagnalæsis, að kunna að raða saman ólíkum breytum til að fá vísbendingar og röksemdir sem styðja, styrkja eða hrekja forsendur fyrir ákvörðunum okkar.
Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig hraði þróunar hefur verið og hverju megi eiga von á. Farið er yfir breytingar á ákvarðanatöku og hvernig gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsendur fyrir góðri ákvarðatöku og samkeppnisyfirburðum.
Hæfniviðmið
Að fá góðan skilning á því hvað gagnalæsi er og hvers vegna gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsenda góðra ákvarðana.
Að geta lesið í aðstæður og gögn sem styrkja ákvarðanir í starfi.
Fyrirkomulag
Opni Háskólinn í Reykjavík sendir skráðum þátttakendum póst til staðfestingar á skráningu. Þau senda einnig póst með slóð á námskeiðið, athugið að sá póstur lendir stundum í ruslpósthólfinu.
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma og hraða sem hentar hverjum og einum.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.
Ef þátttakandi er þegar skráður með aðgang hjá Opna Háskólanum í HR mun viðkomandi fá póst frá Starfsmennt um að skrá sig á námskeiðið beint hjá þeim en með greiðsluupplýsingum Starfsmenntar.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 5. september 2025, kl. 10.00 en upphafið er valfrjálst.
- Lengd2 klst.
- UmsjónDr. Páll Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Planet Youth
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað þeim sem vilja fá góðan grunnskilning á gagnalæsi og gagnagreiningu sem undirbúning góðra ákvarðana.
- Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík. ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum.
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
05.09.2025 | Gagnalæsi | 00:00 | 02:00 | Dr. Páll Ríkharðsson |