Sundhöllin | ÚPS! Gleymdist sundskýlan? Krefjandi samskipti fyrir starfsfólk sundlauga
Það getur verið erfitt að vita hvernig best er að bregðast við í óvæntum eða óþægilegum aðstæðum með sundlaugargest. Fjallað er um hvernig hægt er að setja skýr mörk og sýna ákveðni og fagmannlega hegðun. Á námskeiðinu fá þátttakendur verkfæri í hendurnar til þess að takast á við flókin samskipti við gesti í viðkvæmum aðstæðum.
Fjallað er um mismunandi samskiptamáta fólks, framkomu einstaklinga og hópa. Tekin verða fyrir dæmi og atvik úr sundlaugum og rætt um hvernig best er að leysa þau vandamál sem upp koma.
Hæfniviðmið
Að öðlast sjálfstraust og sjálfsöryggi í samskiptum við sundgesti
Að geta beitt fagmannlegum og viðurkenndum aðferðum til að takast á við sundlaugargesti í viðkvæmum aðstæðum
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- Tími10. nóvember kl. 13.00-15.00.
- Lengd2 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir, sérfræðingur og ráðgjafi.
- StaðsetningLaugardalslaug, salur á annarri hæð.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk Sundhallar Reykjavíkur
- Gott að vitaNámskeiðið er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttir
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 10.11.2023 | Krefjandi samskipti fyrir starfsfólk sundlauga | 13:00 | 15:00 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |