SSH | Skyndihjálp III
Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum.
Námskeiðið hefst á upprifjun úr skyndihjálp I og II. Fjallað er um rafmagnsslys, kal, ofkælingu, ofhitun, eitranir, bráða sjúkdóma og sálræna skyndihjálp.
Þau atriði sem farið er í á námskeiðunum þremur:
- Aðgerðir á vettvangi
- Skoðun og mat
- Endurlífgun fullorðinna og barna
- Losun aðskotahluta
- Brunasár
- Blæðing
- Beinbrot og liðáverkar
- Höfuðáverkar
- Sálrænn stuðningur
- Bráð veikindi, s.s. brjóstverkur, bráðaofnæmi, flogaveiki, sykursýki, öndunarerfiðleika og heilablóðfall.
Hæfniviðmið
Að geta beitt grunnfærni í skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- Tími3. desember 2025 kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónLaufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi
- StaðsetningHúsnæði Starfsmenntar, Skipholt 50 b, 3. hæð, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
03.12.2025 | Skyndihjálp III | 13:00 | 16:00 | Laufey Gissurardóttir |