Endurmenntun atvinnubílstjóra - Öryggi - Farþegaflutningar

ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi

Markmið námsins er að búa hópbifreiðastjóra undir kröfur starfsins með áherslu á faglega aksturstækni og ríka ábyrgð gagnvart farþegum. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér mjúkan akstur sem tryggir þægindi og öryggi fólks flutningi, auk þess að þekkja ítarlega þau ákvæði laga og reglugerða sem gilda um farþegaflutninga og sértækan búnað hópbifreiða.
Bílstjórar skulu átta sig á lykilhlutverki sínu sem þjónustuaðilar, þar sem fagleg framkoma og samskiptahæfni eru undirstaða góðrar upplifunar farþega. Jafnframt er leitast við að efla vitund um náttúruvernd og ferðamennsku, þannig að bílstjórar starfi í sátt við umhverfið og sýni ábyrga hegðun á viðkvæmum ferðamannastöðum.

Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Hæfniviðmið

Að þekkja atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða og farþegaflutningum

Að þekkja ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega

Að þekkja þjónustuhlutverk bílstjóra

Að þekkja til náttúruverndar og ferðamennsku

Að þekkja ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða

Fyrirkomulag

Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu

Helstu upplýsingar

  • Lengd
    48 klst.
  • Umsjón
    Ökuland
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar
  • Gott að vita

    Hver einstaklingur má aðeins taka námskeiðið einu sinni á fimm árum

  • Mat
    Að ljúka námskeiði á 48 klukkustundum

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
31.12.2026Öryggi - Farþegaflutningar00:0000:00Ökuland