Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið og er námskeiðið þeim að kostnaðarlausu. Aðrir verða að skrá sig hjá Iðunni fræðslusetri.
Námskeiðið eykur skilning á þeim verkfærum og kerfum sem umsjónaraðilar og rekstraraðilar farsteingna/bygginga þurfa að hafa til að geta sinnt starfi sínu á skilvirkan hátt.
Námskeiðið veitir innsýn í vaxandi mikilvægi tæknilegs rekstrar á opinberum og einkareknum byggingum og hver eru markmið og verkefni rekstrarsviðs. Nútíma byggingar eru oftar en ekki hlaðnar tæknikerfum af ýmsum toga.
Starf umsjónaraðila slíkra bygginga hefur því undanfarin misseri tekið stakkaskiptum hvað varðar kröfu um tæknilæsi og meðhöndlun upplýsinga. Eitt öflugasta verkfæri umsjónarmanna er í dag Hússtjórnarkerfi en meginmarkmið þess er að stýra notkun, samræma og vakta hin ýmsu tæknikerfi byggingarinnar.
ATH. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi), þá er hakað við fjarnám í skráningarferlinu.
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir helstu kröfum notanda til tæknikerfa í byggingum.
Að geta útskýrt uppbygging Hússtjórnarkerfis og helstu tæknikerfi bygginga.
Að geta gert grein fyrir notkunarmöguleikum hússtjórnarkerfis.
Að geta framkvæmt bilanaleit og útskýrt fyrirbyggjandi aðgerðir með hússtjórnarkerfi.
Að þekkja verkferla við eftirlit og geta gert grein fyrir stjórnun orkunotkunar í byggingum.
Fyrirkomulag
FyrirlesturHelstu upplýsingar
- TímiFöstudagur 15. september kl. 09:00 - 16:00
- Lengd7 klst.
- UmsjónKristján Haukur Flosason
- StaðsetningIÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík / Eða í fjarnámi (þá hakað við í skráningarferli)
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurUmsjónaraðilar og rekstraraðilar fasteigna/bygginga.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið og er námskeiðið þeim að kostnaðarlausu. Aðrir verða að skrá sig hjá Iðunni fræðslusetri. Hægt að skrá sig á staðnámskeið eða fjarnámskeið (í beinu streymi).
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
15.09.2023 | Hússtjórnarkerfi - rekstur og viðhald | 09:00 | 16:00 | Kristján Haukur Flosason |