Tölvuleikni og Windows stýrikerfið

Á þessu námskeiði eflir þú almenna tölvuleikni þína og kynnist Windows stýrikerfinu betur.

Þú leysir verkefni, lærir að skilja hlutverk myndræns notendaviðmóts og hvernig gluggar eru meðhöndlaðir ásamt því hvernig er best að sníða kerfið að þér og þínum þörfum.

Þú kynnist skráarvinnslu, hvernig er unnið með möppur, að breyta nafni á möppum og skrám, hvernig þeim er raðað o.s.frv. Þú vinnur með einföld forrit og býrð til skrár, vistar þær og færir milli mappa, eyðir þeim og endurheimtir þær. Þú lærir að nota stjórnborðið til að móta notendaviðmótið að þínum þörfum og kynnist ýmsum algengum hjálparforritum.

Hæfniviðmið

Að geta nýtt almenna tölvuleikni og unnið með Windows stýrikerfi

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið er sett fram sem 3 vikna kúrs (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 29. september 2025 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja efla færni sína í almennri tölvunotkun
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
29.09.2025Tölvuleikni - Windows stýrikerfið23:5917:59Bjartmar Þór Hulduson