Að temja tæknina: Að nýta gervigreind í starfi
Gervigreind er að umbylta vinnumarkaðnum og skapar ný tækifæri fyrir þau sem kunna að nýta sér hana. Ómögulegt er að spá nákvæmlega fyrir um hvaða störf munu skapast í framtíðinni en við getum verið viss um að ný tækifæri munu opnast.
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í nýjustu þróun í skapandi gervigreind og hvernig nýta má tól á borð við ChatGPT og Notebook LM o.fl. til að auka skilvirkni og gæði í starfi.
Með því að tileinka sér þessa tækni geta einstaklingar:
- Einfaldað flókin verkefni og aukið skilvirkni
- Unnið úr gríðarlegu magni upplýsinga á stuttum tíma
- Nýtt tækni og tölvulausnir sem áður voru utan þeirra þekkingarsviðs
- Aukið verðmæti sitt sem starfskraftar
- Tekist á við fjölbreyttari og krefjandi verkefni
- Haldið á ókannaðar slóðir sköpunar sem nær eingöngu er takmarkað af hugmyndaflugi þátttakandans
Hæfniviðmið
Að skilja grunnhugtök tengd gervigreind
Að geta valið og nýtt fjölbreytt gervigreindartól á árangursríkan hátt í starfi og víðar
Að þekkja takmarkanir og siðferðileg álitamál tengd gervigreind
Að kynnast siðferðilegum álitamálum tengdum gervigreind
Að þekkja hvernig á að forðast mistök eða rangfærslur við notkun tækninnar
Að þekkja leiðir til að tryggja öryggi og trúnað við notkun gervigreindar í starfi
Fyrirkomulag
Tveir tveggja tíma Zoom-fundir og aðgengi að Canvas fyrir námsefni, leiðbeiningar og verkefni.
Þátttakendur þurfa að hafa grunnþekkingu á tölvum og aðgang að nettengdri tölvu með myndavél og hljóðnema.
Þátttakendur þurfa að hafa áskrift að OpenAI ChatGPT sem er ekki innifalin í námskeiðskostnaði.
Hægt er að nýta önnur gervigreindartól en námsefnið er sniðið að GPT.
Þriðjudaginn 14. október fá þátttakendur senda könnun sem þeir svara nafnlaust, markmiðið er að greina hópinn og aðlaga námsefnið að honum.
Fyrri hluti: Fimmtudaginn 16. október 2025 kl. 20.00 - 22.00
- Kynning á grunnatriðum gervigreindar með áherslu á mállíkön (LLMs)
- Hagnýt kynning á tólum eins og ChatGPT, MidJourney, Suno og Notebook LM
- Verkefni og fræðsla í gegn um Canvas
Seinni hluti: Fimmtudaginn 23. október 2025 kl. 20.00 - 22.00
- Tækifæri og áskoranir við notkun gervigreindar í starfi
- Sérhæfðari verkfæri og aðferðir
- Umræður um siðferðileg álitamál og ábyrg notkun
Helstu upplýsingar
- Tími2 skipti: 16. og 23. október 2025 kl. 20.00 - 22.00. Skráningu lýkur 2 virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd4 klst.
- UmsjónMagnús Smári Smárason, gervigreindar sérfræðingur
- StaðsetningVefnám í rauntíma, kennt á Zoom
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir öll sem vilja öðlast grunnþekkingu á gervigreind og geta nýtt sér gervigreindartól á árangursríkan hátt í starfi og víðar
- Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Símenntun Háskóla Akureyrar
- MatMæting og þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
16.10.2025 | Að temja tæknina: Að nýta gervigreind í starfi | 20:00 | 22:00 | Magnús Smári Smárason |
23.10.2025 | Að temja tæknina: Að nýta gervigreind í starfi, dagur 2 | 20:00 | 22:00 |