HBS | Betri tíma- og verkefnastjórnun

Margir kannast við það að finnast þeir aldrei ná að ljúka verkefnunum sínum, að tíminn sé of knappur, að verkefnin séu of mörg eða stöðugar truflanir komi í veg fyrir að árangur náist. Þetta getur valdið álagi og þreytu hjá þeim ásamt togstreitu í samskiptum á vinnustaðnum.

Á námskeiðinu er þátttakendum hjálpað að ná ákveðinni heildarsýn yfir vinnudaginn og vinnusvæðið sitt. Farið verður í hvað tíminn, í vinnunni eða heima, raunverulega fer og hvernig hægt er að forgangsraða verkefnum. Einnig verður skoðað hvernig hægt er að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin og jafnframt að takast á við ýmsar truflanir, s.s. tölvupósta og símtöl sem óhjákvæmilega setja oft mikið mark á vinnudaginn. 

Á námskeiðinu verður m.a. farið í hvað felst í tímaþjófnaði, frestun, skipulagningu og áætlanagerð, fundum og fundarstjórn, að segja nei, jákvæðu hugarfari og sjálfstjórn.

Hæfniviðmið

Að geta náð betri stjórn á vinnudeginum og eigin líðan í vinnunni

Að geta greint núverandi nýtingu á eigin tíma

Að geta forgangsraðað verkefnum út frá mikilvægi

Að geta sett markmið og unnið skipulag og áætlanir úr frá þeim

Að geta borið kennsl á ýmsar truflanir og tímaþjófa og beitt aðferðum til að draga úr áhrifum þeirra

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    29. febrúar kl. 8:30-10. Skráningu lýkur 28. febrúar kl. 12
  • Lengd
    1,5 klst.
  • Umsjón
    Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
  • Staðsetning
    Hljóðbókasafn Íslands, Digranesvegi 5
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    6.300 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk hjá Hljóðbókasafni Íslands
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Ingibjörg Hanna Björnsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
29.02.2024Betri tíma- og verkefnastjórnun08:3010:00Ingrid Kuhlman