SSH - Skaðaminnkandi hugmyndafræði

Á námskeiðinu er fjallað um skaðaminnkandi hugmyndafræði, inngrip og uppruna, með tilliti til þjónustuþega innan málaflokks fatlaðs fólks.

Skaðaminnkandi hugmyndafræði er mannúðleg og gagnreynd nálgun í starfi með einstaklingum sem nota vímuefni og fólki sem glímir við vímuefnavanda.

Megin markmið skaðaminnkunar er að aðstoða fólk við að halda lífi, að draga úr óafturkræfum skaða og auka heilsu og lífsgæði fólks. 

Skipulag á námskeiðinu: 

Vímuefnanotkun:

  • Vímuefnaróf
  • Lögleg og ólögleg vímuefni

Hvernig þróast vímuefnavandi:

  • Lífsálfélagslega líkanið
  • Tengsl áfalla og erfiðrar lífsreynslu við þróun á vímuefnavanda

Skaðaminnkandi hugmyndafræði:

  • Skaðaminnkandi hugmyndafræði og markmið
  • Gagnreynd skaðaminnkandi inngrip og úrræði
  • Uppruni skaðaminkunar og þróun hér á landi
  • Grunngildi skaðaminnkunar í starfi
  • Góð og hjálpleg samskipti í anda skaðaminnkunar

Orðanotkun:

  • Hugtaka- og orðanotkun

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræða

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 1. desember kl. 09:00 - 12:30
  • Lengd
    3,30 klst.
  • Umsjón
    Svala Jóhannesdóttir sérfræðingur í skaðaminnkun og félags- og fjölskyldufræðingur
  • Staðsetning
    Fræðslusetrið Starfsmennt, Skipholt 50 b, 105 Reykjavík (3.hæð)
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi). Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting, þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.12.2021Skaðaminnkandi hugmyndafræði09:0012:30Svala Jóhannesdóttir