SSH - Líkamsbeiting

Sýnt hefur verið fram á að líkamleg álagsmein eru meðal algengustu orsaka þess að fólk er frá vinnu í lengri eða skemmri tíma. Talið er að hægt sé að koma að mestu leyti í veg fyrir heilsuskaða af því tagi með forvörnum og fræðslu um rétta líkamsbeitingu við vinnu.

Efni námskeiðs

  • Helstu atriði er varða stoðkerfi líkamans, uppbygging hryggjar og líkamsstöðu.
  • Helstu áhættuþættir fyrir álagseinkennum við vinnu.
  • Vinnustöður/líkamsbeiting. Hvað er æskilegt, hvað ekki og af hverju.
  • Kennslan verður brotin upp með sýnikennslu og einföldum verklegum æfingum í beitingu líkamans.

Hæfniviðmið

Að auka þekkingu á stoðkerfi líkamans.

Að auka vitund um mikilvægi æskilegrar líkamsbeitingar.

Að þátttakendur geti tileinkað sér vinnustöður sem taldar eru æskilegar við störf þeirra.

Að auka skilning á áhrifum samvinnu og vinnuanda í vinnuhópum.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 13. janúar kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðný Jónsdóttir, sjúkraþjálfari MSc., sérfræðingur í taugasjúkraþjálfun og stöðustjórnun.
  • Staðsetning
    Húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Nám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi).Námskeiðið er að kostnaðarlausu fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar en bæjarfélögin greiða námskeiðsgjald fyrir aðra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
13.01.2022Líkamsbeiting09:0012:00Guðný Jónsdóttir, sjúkraþjálfari MSc., sérfræðingur í taugasjúkraþjálfun og stöðustjórnun