Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umhverfi - Fagmennska og mannlegi þátturinn
ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Markmið námsins er að bílstjórar öðlist góða þekkingu á vegakerfinu og þeim hættum sem geta skapast vegna veðurs og annarra ytri aðstæðna. Farið er yfir helstu orsakir umferðar- og vinnuslysa með það að markmiði að þátttakendur tileinki sér árangursríkar aðferðir við slysavarnir og öryggi í starfi.
Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Hæfniviðmið
Að þekkja vegakerfið og helstu hættur sem eru til staðar eða geta skapast í tengslum við ytri aðstæður, s.s. við mismunandi veðurskilyrði
Að þekkja helstu tegundir og orsakir umferðar- og vinnuslysa og þekki aðferðir við slysavarnir
Fyrirkomulag
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinuHelstu upplýsingar
- Lengd48 klst.
- UmsjónÖkuland
- StaðsetningVefnám
- TegundVefnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar
- Gott að vita
Hver einstaklingur má aðeins taka námskeiðið einu sinni á fimm árum
- MatAð ljúka námskeiði á 48 klukkustundum
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 31.12.2026 | Umhverfi -Fagmennska og mannlegi þátturinn | 00:00 | 00:00 | Ökuland |