Landsbókasafn - Sterk liðsheild og jákvæður starfsandi
Góður starfsandi og sterk liðsheild eru mikilvægir þættir í góðum árangri stofnana. Á námskeiðinu er farið yfir aðferðir til að efla samheldni, samstöðu og liðsanda. Lögð er áhersla mikilvægi þess að virðing sé borin fyrir fjölbreytileika og því að fólk hafi mismunandi skoðanir og bakgrunn. Fjallað er um hvernig skapa má þægilegt og óþvingað andrúmsloft á vinnustað þannig að allir fái að blómstra á sínum forsendum.
Hæfniviðmið
Að efla samheldni, samstöðu og liðsanda innan samstarfshópsins.
Að efla virðingu, skilning og viðurkenningu á fjölbreytileika.
Að efla færni starfsmanna til að taka tillit til ólíkra viðhorfa og lífsskoðana.
Að efla uppbyggileg samskipti á vinnustað.
Fyrirkomulag
Umræður, verkefni og fyrirlestur.Helstu upplýsingar
- Tími17. febrúar, 2015.
- Lengd3 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk Landsbókasafns.
- Gott að vitaNámskeiðið er haldið í fyrirlestrasal bókasafnsins.
- Tengiliður námskeiðsBergþóra Guðjónsdóttirbergthora@smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 17.02.2015 | Sterk liðsheild og jákvæður starfsandi | 00:00 | 03:00 | Ingrid Kuhlman |