PowerPoint, margmiðlun og kynningar
Á þessu námskeiði lærir þú að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar. Þú lærir jafnframt hvernig þú getur nýtt gervigreindina Copilot.
Þú kynnist sniðskjölum og hvernig er best að nota sniðmát, gera textabreytingar, stilla litasamsetningar og myndefni. Þú lærir á lista, töflur, mynd- og skipurit, hvernig á að stilla haus og fótlínur og setja upp minnispunkta. Þú lærir að raða glærum, setja upp útlínur, nota hreyfimyndir, hljóðsetningu og hvernig á að setja upp sjálfvirka spilun.
Þetta námskeið hentar öllum sem vilja flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan máta og koma efni á framfæri á lifandi og eftirtektarverðan hátt.
Hæfniviðmið
Að geta útbúið vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar
Fyrirkomulag
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 29. ágúst 2025 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið hentar sérstakleg vel öllum þeim sem vilja koma efni á framfæri á lifandi og skemmtilegan hátt
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
29.08.2025 | PowerPoint, margmiðlun og kynningar | 09:00 | 03:00 | Bjartmar Þór Hulduson |