Lykilatriði breytingastjórnunar - grunnur
Brennur þú fyrir umbótum? Stendur þú frammi fyrir því að þurfa að gera breytingar en veist ekki hvar þú átt að byrja? Eða hefurðu reynt að innleiða breytingar í þinni vinnu en lent á vegg?
Ef svo er, þá er þetta námskeið fyrir þig! Á námskeiðinu kynnast þátttakendur viðurkenndri aðferðarfræði breytingastjórnunar sem borið hefur árangur. Eftir námskeiðið ættu þátttakendur að hafa öðlast hæfni til þess að innleiða breytingar á árangursríkari hátt.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Mikilvægi breytingastjórnunar.
- Helstu lykilþætti breytingastjórnunar.
- Skrefin sem þarfa að taka í breytingaferlinu.
- Ávinningur af árangursríkri breytingastjórnun.
Hæfniviðmið
Að öðlast skilning á mikilvægi breytingastjórnunar
Að öðlast yfirsýn yfir skrefin sem þarf að taka í breytingaferlinu
Að öðlast hæfni til að innleiða breytingar á árangursríkari hátt
Að geta nýtt sér ýmis ráð, tæki og tól þegar staðið er frammi fyrir breytingum
Fyrirkomulag
Fyrirlestrur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími20. febrúar 2026 kl. 09.00 - 12.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
- Lengd3 klst.
- UmsjónBjörk Ben Ölversdóttir, eigandi og ráðgjafi hjá Mintos ehf. og Íris Dögg Kristmundsdóttir, eigandi og ráðgjafi hjá Mintos ehf.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhagi 7, 107 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja kynnast breytingastjórnun eða dusta rykið af fyrri kunnáttu
- Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting, þátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 20.02.2026 | Lykilatriði breytingastjórnunar - grunnur | 09:00 | 12:00 | Björk Ben Ölversdóttir og Íris Dögg Kristmundsdóttir |