Copilot á mannamáli

Microsoft Copilot er orðið eitt mikilvægasta verkfæri nútímans – hvort sem þú ert að skrifa texta, greina gögn, undirbúa fundi eða halda utan um verkefni. Á þessu stutta og markvissa námskeiði lærir þú að nota Copilot á skýran, einfaldan og hagnýtan hátt.

Við förum yfir hvernig þú getur sparað tíma, aukið gæði og innleitt ný vinnubrögð sem nýtast strax í starfi.

Þú lærir að:

  • Nýta Copilot í daglegum verkefnum án tæknilegs flækjustigs
  • Skrifa betri beiðnir (prompts) sem skila betri niðurstöðum
  • Nota Copilot til að skrifa, greina og setja saman upplýsingar
  • Einfalda ferla og bæta skipulag í M365-umhverfinu

ATHUGIÐ! Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að greiddri útgáfu af Copilot.

Hæfniviðmið

Að öðlast færni til að geta notað Copilot á skýran, einfaldan og hagnýtan hátt

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    1. desember 2025 kl. 17.00 - 20.00 Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Rúna Guðrún Loftsdóttir hjá fyrirtækinu Decasoft
  • Staðsetning
    Akademías, Borgartúni 23, 3. hæð, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir öll sem vilja nýta Copilot á einfaldan, skilvirkan og markvissan hátt – óháð starfi eða tæknikunnáttu
  • Gott að vita

    Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Akademias. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Akademias.

  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.12.2025Copilot á mannamáli17:0020:00Rúna Guðrún Loftsdóttir