Akra | Viðfangalíkanið

ATH. Þessi námskeið eru aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu en aðrir gefi upp kennitölu þeirrar stofnunnar sem greiðir fyrir námskeiðið eða greiði sjálfir.

Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim aðilum sem eru ábyrgir fyrir undirbúningi og gerð rekstraráætlana. 

Viðfangavídd AKRA kerfisins byggir á upplýsingum í ORRA en notendur geta haft áhrif á það hvernig viðfangavíddin er sett upp í áætlanakerfinu. Hér er fjallað er um tilgang og virkni viðfangalíkansins, útskýrt hvernig viðföng eru skilgreind og hvernig hægt er að bæta samtölum við viðfangavíddina í AKRA. 

Námskeiðið fer fram á Teams þar sem skilgreind eru viðföng og samtölur í AKRA fyrir dæmigerða stofnun.

Upptaka verður gerð aðgengileg á „Mínar síður“ eftir að námskeiðinu lýkur.

Hæfniviðmið

Að þátttakendur þekki hvernig viðfangalíkanið virkar

Fyrirkomulag

Fyrirlestur

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudagur 18. september kl. 11:00 - 12:00
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingvi Þór Elliðason
  • Staðsetning
    Streymi, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    6.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þetta námskeið er eingöngu ætlað þeim aðilum sem eru ábyrgir fyrir undirbúningi og gerð rekstraráætlana
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.09.2023Rekstraráætlanir ríkisaðila - Viðfangalíkanið11:0012:00Ingvi Þór Elliðason